Gæðingamót Sörla

  • 3. júní 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Niðurstöður mótsins

Gæðingamót Sörla og Graníthallarinnnar fór fram dagana 29. maí til og með 31. maí.  Veðrið lék við keppendur og aðra gesti mótsins fyrsta daginn en á föstudag kom hefðbundið íslenskt veður með roki og rigningu.  Á laugardeginum sjálfum úrslitadeginum hélst hann þurr rétt á meðan á mótinu stóð.  Mótið gekk mjög vel og voru menn sammála að vel hafi tekist til. Margir glæsilegir hestar sáust á brautinni sem gefa fyrirheit um góða frammistöðu Sörlamanna á komandi landsmóti. 

Að þessu sinni var gæðingur mótsins valinn Haukur frá Ytra – Skörðugili sem Sindri Sigurðsson sýndi með glæsibrag.  Knapi mótsins var valin Hanna Rún Ingibergsdóttir en hún kom tveimur hestum inn á Landsmót í B-flokki.  Leist-bikarinn fékk Sálmur frá Halakoti, knapi Atli Guðmundsson en þessi bikar er gefinn þeim hesti sem fær hæstu skeiðeinkunn í forkeppni í A-flokk.

Heildarniðurstöður má svo sjá hér:

Úrslit laugardagins http://sorli.is/node/147

Niðurstöður forkeppni og landsmótsfarar  http://sorli.is/node/146

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link