Skemmtilegasti tími ársins
Nú er að genginn í garð sá tími árs sem margir telja einn þann mest spennandi. Víða um land eru haldnar stóðréttir en þær marka upphaf þess tíma þegar ræktendur fara að líta á ungviðið og hefja frumtamningar. Stóðréttir hafa lengst haldist á Norðurlandi en þær hafa margar þróast þannig að nánast jafnmargt er um mannfólk og hross á þeim. Samhliða stóðréttum eru því oft haldin mikil mannamót þar sem léttleiki, gleði og söngur er áberandi. Þeir sem enn hafa ekki lagt leið sína á stóðréttir eru nokkrar slíkar eftir en um helgina verður m.a. Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði
Stóðréttir
Árhólarétt í Unadal, Skagafirði föstudaginn 25. september kl. 13.00
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 26. september kl. 9.00
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði, laugardaginn 26.september
Flókadalsrétt, Fljótum, Skagafirði laugardaginn 3. október
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 3. október um kl. 10.00
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 3. október kl. 13.00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH