Sölusýning í Samskipahöllinni

  • 16. september 2015
  • Fréttir
Sýningin verður sýnd í beinni útsendingu.

Sölusýning verður haldin föstudagskvöldið 9. október næstkomandi og hefst klukkan fimm. Sýningin verður tekin upp og sýnd í beinni útsendingu á netinu. Sýningin verður haldin í Samskipahöllinni og verður veitingasalan opin. Frábært tækifæri til að koma hestum á framfæri þegar sölutímabilið stendur sem hæst ásamt því að koma saman og eiga góða kvöldstund í Spretti.

Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected] og henni lýkur á miðnætti 5. október.
Við skráningu þarf að koma fram nafn og is númer hests.Lýsing (m.a. upplýsingar um ganglag, geðslag, vilja, þjálni, fyrir hvernig knapa hann hentar best og keppnisárangur eigi það við)Verðflokkur ( A: – 1.200.000 /  B: 1.201.000 – 3.000.000 / C: 3.000.0001 og yfir)Almennar upplýsingar (hvernig hægt er að ná í umráðarmann/eiganda og hvar hesturinn er staðsettur til prufu)
Skráningagjald er 5.000 krónur á hest
Skráningar berist á netfangið [email protected]
Símar: 863-8813 (Elka) og 896-3600 (Maggi)

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link