Vertu best(ur) þegar á reynir- Hugarþjálfun fyrir hestamenn
Reiðkennarinn Hinrik Sigurðsson hefur verið að bjóða upp á rafræna viðburði á Zoom. En næsti viðburður verður 27.nóvember þegar tími númer tvö í fyrirlestraröð hans um reiðmennsku og þjáfun fer fram. Efni tímans er hugarþjálfun og þá sérstaklega aðlöguð að þeim áskorunum sem mæta hestamönnum í leik og starfi. Þar blandar Hinrik saman tveimur af sínum helstu áhugamálum, hugarþjálfun og reiðmennsku. Farið verður yfir ýmis mál, sem dæmi; hugarfar, markmiðasetningu, stjórn á stressi eða hræðslu ásamt fleiru.
Skráning er opin en verð er kr. 2.500. Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected] eða í pm á facebook. Nánari upplýsingar á viðburðinum: Vertu best(ur) þegar á reynir- Hugarþjálfun fyrir hestamenn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Kristín tekur við formennsku í Sörla