Skráning hafin
Mikill áhugi er á Sölusýningunni sem haldin verður í Samskipahöllinni í Spretti þann 9. október næstkomandi. Skráning er hafin og stendur til miðnættis þann 5. október. Mikill áhugi er fyrir sýningunni bæði hérlendis og erlendis en hún verður sýnd í beinni útsendingu á netinu. Von er á glæsilegum hrossum frá landinu öllu og um að gera að taka daginn frá!
Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected] og henni lýkur á miðnætti 5. október.
Við skráningu þarf að koma fram nafn og is númer hests.
Lýsing (m.a. upplýsingar um ganglag, geðslag, vilja, þjálni, fyrir hvernig knapa hann hentar best og keppnisárangur eigi það við)
Verðflokkur ( A: – 700.000 / B: 701.000 – 1.500.000 / C: 1.500.001 – 3.000.000 / D: 3.000.001 og yfir)
Almennar upplýsingar (hvernig hægt er að ná í umráðarmann/eiganda og hvar hesturinn er staðsettur til prufu)
Skráningagjald er 5.000 krónur á hest og þarf að greiðast í síðasta lagi á hádegi þann 6. október.
Skráningar berist á netfangið [email protected]
Símar: 863-8813 (Elka) og 893-3600 (Maggi)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH