Áfram gakk

  • 8. október 2021
  • Fréttir

Myndin er af Skyggni frá Skeiðvöllum og taumurinn þokkalega í friði

Föstudagspistill Hinna Sig

Þjálfunarstig tvö er Taktur-Jafn hraði-Jafnvægi

Að hesturinn fái að finna eigið jafnvægi á gangtegundum sínum, slakur og spennulaus.

Það eru þrír hornsteinar þjálfunarinnar sem knapinn þarf að huga vel að þegar hesturinn er orðinn slakur og eiginleg liðkandi og styrkjandi vinna hefst fyrir alvöru. Það er Hraði-Stefna og Gangtegund, í þessari röð.

Að ná góðri stjórn á hraða snýst ekkert bara um það að fá öran hest til þess að ganga hægar eða latann hest hraðar, heldur snýst það fyrst og fremst um að ná jöfnum hraða. Að hesturinn gangi með jafna orku, án þess að hika.

Þegar knapinn hefur góða stjórn á jöfnum hraða er fyrst hægt að stjórna stefnunni af einhverri nákvæmni. Hestur sem flýtir sér er td gjarn á að renna út úr baug á veikari hlið sinni, og erfitt að stýra sporinu almennilega, og með það sagt er mjög erfitt að útskýra mikilvægi þess að vita nákvæmlega á hvaða spori er riðið þegar kemur í frekari vinnu við söfnun til dæmis.

Þegar knapinn hefur góða stjórn á hraða og stefnu, það er að segja, hefur stjórn á fótum hestsins, þá er hægt að fara að huga að því að hafa áhrif á gangtegundir af einhverju gagni. Við getum vissulega valið gangtegund nokkurn veginn frekar snemma í þjálfun og tamningu hestsins, en það er engin leið að hafa nein áhrif að gagni á gæði gangtegunda nema hafa fulla stjórn á hraða og stefnu.

Í þjálfunarstigi tvö er forsenda framhaldsins eiginlega sú að hesturinn geti gengið í hreinum takti, á jöfnum hraða á löngum taum í lágu vinnuformi. Hann lærir að finna og halda eigin jafnvægi, lærir að lengja yfirlínu og lyfta henni til þess að geta borið knapa uppi á góðan hátt, og knapinn öðlast færni í að stýra hraða og stefnu án þess að nota tauminn um of.

Því það hlítur að vera markmið okkar allra sem hestamanna, að ná að nota helví… tauminn eins lítið og mögulegt er, og hesturinn fái og læri að halda á sér sjálfur J

Ég veit að það er hægara sagt en gert, við erum náttúrulega apar öll, við notum hendurnar í allt sem við gerum. Klæðum okkur, háttum okkur, þvoum, burstum og allt mögulegt. Að koma á hestbak og gera akkúrat þveröfugt er meira en að segja það.

EN ég er glerharður talsmaður þess að sá knapi sem nær færni í að nota kollinn, líkamstjáningu og jafnvægi sitt og getur látið bölvaðan tauminn í friði eins mikið og mögulegt er, hann verður góður farþegi fyrir hestinn sinn.

Þannig að ég segi eins og einn kennari sem ég reið reiðtíma hjá fyrir mörgum árum ”Ef þú þarft ekki að nota tauminn, slepptu þá!!!!”

….en það er ágætt að hafa hann þarna samt stundum.

Eigið geggjaða helgi 🙂

Over and out Hinni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link