Fréttatilkynning frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum
Á aðalfundi Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum sem haldin var þann 1. október sl. var kosin inn ný stjórn, sem hefur nú formlega hafið störf.
Stjórnin er skipuð fjölbreyttum hópi einstaklinga sem munu kappkosta við að halda uppi hróðri Meistaradeildar og stuðla að áframhaldandi jákvæðri þróun hennar.
Stjórnina skipa:
Sigurbjörn Eiríksson, formaður
Sóley Margeirsdóttir, ritari
Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir, gjaldkeri
Erlendur Árnason
Teitur Árnason
Varamenn: Gústaf Ásgeir Hinriksson, Bjarni Elvar Pjetursson
Sjá nánar: https://www.meistaradeild.is/stjoacuternboard.html
Á næstu dögum verða liðin á keppnistímabilinu 2022 kynnt til leiks ásamt dagskrá og verður spennandi að sjá hvaða breytingar hafa orðið á liðunum – en liðin eru afar sterk að vanda.
Núverandi stjórn vill að lokum þakka fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir vel unnin störf í þágu deildarinnar.
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Kristín tekur við formennsku í Sörla