Pjetur N. Pjetursson formaður HÍDÍ
Pjetur N. Pjetursson er nýr formaður HÍDÍ, Hestadómarafélags Íslands. Gylfi Geirsson, sem var formaður í tíu ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs á aðalfundi félagsins, sem haldinn var 23. janúar. Meðstjórnendur eru Berglind Sveinsdóttir og Ólöf Guðmundsdóttir.
Engin stórvægileg mál voru tekin fyrir á aðalfundinum, en þó kom fram að nýr leiðari fyrir dómara væri í burðarliðnum hjá sportnefnd FEIF.
Ný gjaldskrá fyrir dómarastörf voru samþykkt . Héraðsdómarar fá 2500 krónur á tímann, landsdómarar 3000 krónur, alþjóðlegir dómarar 3500 krónur, og útkall dómara kostar 15000 krónur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson