Yfirlit á Hellu
Yfirlitið á Hellu hófst í morgun en dagurinn í dag verður helgaður hryssunum. Byrjað var kl. 8:00 og er áætlað að sýningum í dag ljúki 19:00. Hér fyrir neðan er hægt að sjá dagskrána en stóðhestarnir verða sýndir á morgun.
Nokkuð er um hækkanir á Hellu en m.a. hækkaði Blíða frá Litlu-Tungu II úr 9,0 í 9,5 fyrir skeið. Stika frá Votumýri hækkaði einnig en hún hækkaði úr 8,0 fyrir skeið í 8,5 og úr 8,5 fyrir hægt tölt í 9,0.
Sýningarröð flokka verður sem hér segir:
Föstudagur 6. júní – sýning hefst kl. 8:00
- Hryssur, 7 vetra og eldri og geldingar
- Hryssur, 6 vetra
- Hádegishlé um kl. 12 (að loknum 10 sýnigarhópum 6 v. hryssna)
- Hryssur, 6 vetra frh.
- Hryssur, 5 vetra
- Hryssur, 4 vetra
Laugardagur 7. júní – sýning hefst kl. 8.00
- Stóðhestar, 4 vetra
- Stóðhestar, 5 vetra
- Stóðhestar, 6 vetra
- Stóðhestar, 7 vetra og eldri
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári