Minnum á sýnikennslu Didda annað kvöld!
Félag tamningamanna minnir á sýnikennslu Sigurbjarnar Bárðarsonar tamningameistara í reiðhöll Gusts við Álalind í Kópavogi annað kvöld,..
fimmtudaginn 30. desember kl. 20. Þar ætlar knapi ársins að fara yfir ýmis konar beislabúnað sem nýtist við þjálfun og sýna fjölbreytt vinnubrögð við beislisvinnu ofl. Sigurbjörn er mikill fróðleiksbrunnur og skemmtilegur í framsögu þannig að allir ættu að geta haft gagn og gaman af. Sýnikennslan er öllum opin og frítt er inn fyrir skuldlausa FT félaga, en aðgangseyrir aðeins kr. 1.000 fyrir aðra.
Tilvalið tækifæri að hitta hestamenn í góðu tómi, fræðast í byrjun þjálfunartímabilsins og eiga skemmtilega kvöldstund saman. Allir velkomnir!
Félag tamningamanna
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári