Tölt Meistaradeild: myndir
Hér má sjá myndir frá töltveislu meistaradeildarinnar síðastliðið fimmtudagskvöld.
Viðar Ingólfsson sigraði á Vornótt frá Hólabrekku með einkunnina 8,89. Í öðru sæti var Árni Björn Pálsson á Stormi frá Herríðarhóli með einkunnina 8,44 og jafnir í 3-4 sæti voru þeir Sigurður Vignir Matthíasson á Andra frá Vatnsleysu og Guðmundur Björgvinsson á Hrímni frá Ósi með einkunnina 8,22.
“Staðan í stigakeppninni er þannig að Guðmundur Björgvinsson leiðir einstaklingskeppnina með 39 stig og sigurliðið frá því í fyrra, Top Reiter/Ármót, leiðir liðakeppnina með 217,5 stig.
Í einstaklingakeppnin er efstur, eins og áður sagði, Guðmundur Björgvinsson með 39 stig. Þar á eftir er Viðar Ingólfsson með 25 stig og í þriðja sæti er Árni Björn Pálsson með 21,5 stig. Það er mjög mjótt á munum og getur allt gerst í svona harðri keppni.
Lið Top Reiter/Ármóts leiðir liðakeppnina nokkuð örugglega með 217,5 stig en nóg er af stigum eftir í pottinum og því verða Top Reiter menn að standa sig ef þeir ætla að halda forustunni. Lýsi er í öðru sæti með 170 stig og þar á eftir kemur Hestvit/Árbakki með 164,5. Lið Auðsholtshjáleigu er með 142,5 stig en það munar einungis hálfu stigi á liði Auðsholtshjáleigu og liði Hrímnis/Netvistunar sem er með 142 stig,“ segir á heimasíðu meistaradeildar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH