Úrslit frá Folaldasýningu Vesturlands

  • 3. desember 2021
  • Fréttir
Hrafndís frá Leirulæk folald sýningar

Folaldasýning Vesturlands var haldin í kvöld, þáttaka var með ágætum en alls voru 12 folöld skráð til leiks, 7 hryssur og 5 hestfolöld. Áhorfendur létu sig ekki vanta í stúkuna, en um 50 manns voru mættir í Faxaborg í kvöld.

Úrslit urðu sem hér segir:

Hryssur:

?Lady frá Skáney IS2021235807 brún, f: Þráinn frá Flagbjarnarholti m: Skvísa frá Skáney. Ræktandi og eigandi: Haukur Bjarnason
?Hrafndís frá Leirulæk brún, f: Kveikur frá Stangarlæk 1 m: Þórdís frá Leirulæk. Ræktendur og eigendur: Brynja Gná Heiðarsdóttir og Sigurbjörn Jóhann Garðarsson.
?Perla frá Skáney IS2021235818 brún, f: Glampi frá Kjarrhólum m: Sókn frá Skáney. Ræktandi og eigandi: Randi Holaker.

Eigendur efstu merfolalda.

Hestar:

?Nn frá Vetrarfelli IS2021 Leirljós blesóttur, f: Adrían frá Garðshorni á Þelamörk m: Birta frá Stórhól. Ræktandi: Sigurður Einar Stefánsson eigendur: Sigurður Einar Stefánsson og Ágústa Hrönn Óskarsdóttir.
?Sesar frá Skáney IS20211 rauðblesóttur, f: Sólon frá Skáney m: Syrpa frá Skáney. Ræktendur og eigendur: Randi Holaker og Haukur Bjarnason.
?Brynjar frá Leirulæk IS2021136750 brúnn, f: Blær frá Leirulæk m: Skotta frá Leirulæk. Ræktandi og eigandi: Guðrún Sigurðardóttir

Eigendur efstu hestfolalda.

Hross sýningarinnar kosið af áhorfendum:
?Hrafndís frá Leirulæk

Ræktendur og eigendur Hrafndísar frá Leirulæk sem var valin folald sýningar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link