„Heillaðu hestinn og hesturinn mun heilla þig“

Súsanna Sand Ólafsdóttir hefur getið sér gott orð sem tamningamaður, reiðkennari og íþróttadómari. Súsanna er að gefa út bókina „Heillaðu hestinn og hesturinn mun heilla þig“ en bókin er skrifuð af Stinu Helmersson. Bókin er fyrir knapa á öllum stigum reiðmennskunnar og aðgangur að myndböndum með Súsönnu um þjálfun fylgir bókinni.
„Eftir því sem ég læri meira verður reiðmennskan svo spennandi, áhugi og eldmóður minn eykst. Með opnum huga er svo magnað að geta lært reiðmennsku allt lífið og upplifað „aha“ augnablik endalaust. Undanfarin ár hef ég lært mjög mikið um líkamsbeitingu knapans og hversu mikilvægt er að átta sig á sínum áhrifum á hestinn með eigin líkama. Markmiðið er að hjálpa hestinum að vera sjálfberandi, til þess verður knapinn einnig að vera sjálfberandi,” segir Súsanna en hún telur að hesturinn verði ekki þreyttur eða leiður á knapa sem þjálfar af næmni og sanngirni. „Næmur knapi mun ekki krefja hestinn um meira en innistæða er fyrir. Of mikið er of mikið, of lítið er of lítið. Hesturinn mun njóta þess að leggja sig fram eftir því sem hann lærir, skilur og styrkist. Líkamlegt og andlegt jafnvægi knapa hefur bein áhrif á hestinn,” bætir Súsanna við. „Það er pínu spenna að bíða eftir viðbrögðum fólks en þau hafa verið mjög góð. Ég fékk t.d. skilaboð frá einni hestakonu, sem er sú fyrsta til að lesa bókina þar sem hún sagði; „Þessi bók er klárlega “game changer “ fyrir mig“,“ segir Súsanna.
Súsanna ákvað að skrifa þessa bók vegna þess að efni bókarinnar er henni mjög hugleikið, sem reiðkennari og dómari. Til þess að miðla þekkingu hennar sem best og til að hafa bókina lifandi mun Súsanna setja inn reglulega sýnikennslur til stuðnings textanum á Youtube en kóði fyrir aðgang á myndböndin á YouTube er aftast í bókinni.
Bókin verður fáanleg á vefsíðu Súsönnu, heilladuhestinn.com, og einnig í verslunum Líflands og Ástunda sem og á litlahestabudin.is
Hér fyrir neðan eru nokkur skjáskot úr bókinni