Skagfirðingur

  • 29. maí 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Félagsmót Skagfirðings og úrtaka fyrir fjórðungsmót

Félagsmót Skagfirðings og úrtaka fyrir fjórðungsmót verður haldið helgina 3. – 4. júní 2017 á Sauðárkróki. Keppt verður í A- og B-flokk (opnir flokkar), C-flokk (áhugamannaflokkur, skráð sem annað-minna vanir), barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk og pollaflokk (skráð sem annað-pollaflokkur).Skráningu lýkur miðvikudaginn 31.maí klukkan 20:00. 
Skráningargjöld í A- og B- flokk, barnaflokk, unglingaflokk og ungmennaflokk er 4.000kr og C- flokkur 3.000kr, frítt er í pollaflokk. 

ATH! Ef skráð er eftir að skráningu lýkur tvöfaldast skráningargjaldið. 
Veitingasala verður í reiðhöllinni Svaðastöðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link