Gunnar á leið í formannssæti?

  • 5. desember 2012
  • Fréttir
Gunnar á leið í formannssæti?

Einhverjar vísbendingar virðast vera uppi um mögulegar formannsbreytingar  í alþjóðasamtökum Íslenska hestsins. Á  þýska fréttavef isibless er því gert í skóna að varaformaðurinn, Gunnar Sturluson, hafi þegar verið beðin um að taka við formannssætinu þegar Jens Iverssen lætur af störfum.

Ekki hefur verið ákveðið hvenær formannstörfum Jens ljúki, en því er velt uppi hvort slíkar mannabreytingar muni eiga sér stað á Heimsmeistaramóti, jafnvel þegar það verður haldið í heimalandi formannsins í Danmörku árið 2015.

Jens Iversen hefur verið formaður síðan í september 2006. Auk þess að vera tamningamaður var Jens áður afar virkur knapi í keppnum og tók m.a. þátt í Heimsmeistaramóti fjórum sinnum og var síðar liðsstjóri og þjálfari á fimm mótum. Hann er starfandi lögfræðingur.

Það sama má segja um Gunnar, sem er framkvæmdarsstjóri LOGOS lögmannsþjónustu auk þess að vera ástríðuhestamaður. Hann ræktar hross og rekur tamningastöðina Hrísdalshesta. Hann hefur verið varaformaður FEIF síðan í mars 2011.

Gunnar vildi ekki tjá sig um málið þegar Eiðfaxi hafði samband við hann.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link