Anna sigrar Stjörnutöltið
Stjörnutöltið fór fram í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld. Margir glæstir gæðingar öttu kappi og fór það svo að Anna Kristín Friðriksdóttir og Glaður frá Grund sigruðu.
Hástökkvari kvöldsins var Þórarinn Ragnarsson á Þyt frá Efsta Dal en þeir félagar komu upp úr B úrslitunum og enduðu í öðru sæti.
Mjög skemmtilegt mót og gekk það hratt fyrir sig. Hér fyrir neðan birtast niðurstöðurnar frá stjörnutöltinu.
A úrslit
1. Anna Kristín Friðriskdóttir – Glaður frá Grund 8,00
2. Þórarinn Ragnarsson – Þytur frá Efsta Dal 2 7,61
3. Guðmundur Karl Tryggvason – Rósalín frá Efri- Rauðalæk 7,50
4. Þorsteinn Björnsson – Króna frá Hólum 7,39
5. Arnar Bjarki Sigurðarson – Rún frá Reynisstað 7,39
6. Jón Helgi Sigurgeirsson – Töfri frá Keldulandi 7,11
B úrslit
6. Þórarinn Ragnarsson – Þytur frá Efsta Dal 2 7,50
7. Magnús Bragi Magnússon – Gyrðir frá Tjarnarlandi 7,22
8. Líney María Hjálmarsdóttir – Völsungur frá Húsavík 7,00
9. Jakob Víðir Kristjánsson – Gítar frá Stekkjardal 6,72
Anna Kristín Friðriksdóttir og Glaður frá Grund
Þórarinn Ragnarsson og Þytur frá Efsta-Dal
Guðmundur Karl Tryggvason og Rósalín frá Efri-Rauðalæk
Styttu haustið með EiðfaxaTV