Gríðarleg ásókn í Spuna frá Vesturkoti

  • 5. júlí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Stefnir í stærsta árgang sögunnar

Gríðarleg ásókn er í að koma hryssum undir Spuna frá Vesturkoti, sem sló í gegn á LM2011 á Vindheimamelum og er hæst dæmdi stóðhestur heims með 8,82 í einkunn. Spuni er á sæðingastöðinni á Sandhólaferju.

Eftir vel lukkaða sýningu á Sörlastöðum í forskoðun í vor var tekin sú ákvörðun að fara með Spuna að Sandhólaferju, þar sem í ljós kom að hann myndi ekki anna eftirspurn með „gamla laginu“. Um sjötíu hryssur komu undir hestinn og náðist að sæða fjörutíu þeirra áður en hann fór á Landsmótið.

Ekki hefur eftirspurnin minnkað. Í gærkvöldi voru komnar nær fjörutíu hryssur til viðbótar og allnokkrir höfðu ekki fyrir því að gera boð undan sér, enda stoppar ekki síminn á sæðingastöðinni og ekki auðvelt að ná sambandi.

Samkvæmt upplýsingum Hestablaðsins gefur Spuni þrjá til 13 skammta af sæði á dag. Hægt er sæða jafnmargar hryssur ef þær eru á rétttum tíma. Miðað við sex til átta skammta að jafnaði ætti að vera hægt að sæða um tvö hundruð hryssur á mánuði. Það stefnir því í að árgangurinn undan Spuna 2012 verði sá stærsti í hrossaræktarsögunni undan einum stóðhesti.

Finnur Ingólfsson, ræktandi og eigandi hestsins, segir að menn hafi ekki verið undirbúnir fyrir þessa mikla ásókn. Ekki hafi verið tekin ákvörðun um hve margar hryssur verði teknar undir hestinn í sumar, en á því hljóti þó að vera einhver skynsamleg takmörk. Hann mun funda með forstöðumönnum sæðingastöðvarinnar í dag þar sem farið verði yfir stöðuna og framhaldið ákveðið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link