Árleg fundarferð um landið

  • 30. september 2015
  • Fréttir

.

Fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt.

Almennir fundir í fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hestamanna hefjast fljótlega. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru eftirfarandi:

·         Markaðsátak í hestamennsku – kynning.

·       Sýningarárið 2015 í kynbótadómum. 

·      Vinna við nýjan dómskala í kynbótadómum verður kynnt.

·        Val kynbótahrossa á Landsmót 2016 – hugmyndir kynntar.

·         Framkvæmd Landsmóts 2016.

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfunni og mikilvægt að hestafólk fjölmenni á fundina.

Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðarmanni í hrossarækt verður fulltrúi Landssambands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.

 

Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

5. okt. Höfuðborgarsvæðið kl. 20:00.  Í Samskipahöllinni í Spretti.

6. okt. Eyjafjörður kl. 20:00.  Í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit. 

7. okt. Skagafirði kl. 20:00.  Í Tjarnarbæ á Sauðárkróki.

8. okt. Húnavatnssýslur kl. 20:30 – Gauksmýri.

 

 Næstu fundir í fundarröðinni verða kynntir fljótlega.

 

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link