Tvöfalt hjá Sigurði og Hringi

  • 6. maí 2012
  • Fréttir
Tvöfalt hjá Sigurði og Hringi

Stórskotalið kostahrossa í fimmgangsúrslitum 1. flokks og sýningar keppenda glæsilegar. Fór þó svo að Sigurði V. Matthíassyni og Hringi frá Fossum var ekki  hnikað úr efsta sætinu þótt Guðmundur Björgvinsson hafi gert atlögu að efsta sætinu á gráu hryssunni Gjöll frá Skíðbakka III ,en þau unnu B-úrslitin í gær. Þeir fengu silfur en Edda Rún Ragnarsdóttir hlaut brons á Völi frá Árbæ.

 
Sigurður og Hringur eru nú orðnir tvöfaldir Reykjavíkumeistarar en þeir sigruðu gæðingaskeiðkeppni 1. flokks í gær. 
 
Sigurður hlaut þar að auki 2 plúsa frá dómurum fyrir reiðmennsku á skeiði. Sæla frá Skíðbakka II reið hins vegar úr braut eftir annan sprett sinn og hlaut Anna S. Valdemarsdóttir því ekki lokaeinkunn og þurfti að sætta sig við 6. sæti.
 
1   Sigurður Vignir Matthíasson / Hringur frá Fossi 7.33
2   Guðmundur Björgvinsson / Gjöll frá Skíðbakka III 7.02
3   Edda Rún Ragnarsdóttir / Völur frá Árbæ 6.86
4   Lena Zielinski / Patrik frá Reykjavík 6.67
5   Janus Halldór Eiríksson / Barði frá Laugarbökkum 6.57
6   Anna S. Valdemarsdóttir / Sæla frá Skíðbakka III

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link