Fagráð í hrossarækt á að vera íhaldssamt
„Fagráð í hrossarækt er íhaldssamt og á að vera það,“ segir Kristinn Guðnason, formaður fagráðsins og Félags hrossabænda. „Ræktunartakmarkið í hrossaræktinni er og hefur verið alhliðahesturinn. Ef menn vilja breyta ræktunartakmarkinu, þá verðum við taka þá umræðu. Fagráðið er alls ekki á móti umræðu og nýjum hugmyndum, þvert á móti. Ég hef verið á þeirri skoðun að það beri að rækta alhliða hest og að árangur þeirrar ræktunar verði sá að hann verði jafngóður á tölti og bestu klárhestar í dag. Ásamt því að vera flugvakur og góður á öllum gangtegundum. Ef einhver sýnir mér fram á að önnur stefna sé æskilegri eða heppilegri þá er ég alveg opinn fyrir því.“
En ef alhliða hesturinn er ræktunartakmarkið, erum við þá ekki í raun að stefna að því að útrýma klárhestinum og þar með stefna að því að hætta að keppa í fjórgangi og B flokki gæðinga?
„Ég er sammála því að þessi spurning á fullan rétt á sér og ég hef spurt mig að þessu sjálfur. Þróunin í ræktun og reiðmennsku er ör og við verðum að vera vakandi og taka umræðuna á hverjum tíma. Þær breytingar sem gerðar voru á stigunarkvarðanum síðastliðið vor miðuðu meðal annars að því að auka vægið á gangtegundunum sjálfum og minnka það í staðinn á huglægum þætti eins og vilja og geðslagi. Markmiðið með auknu vægi á feti var náttúrulega að leggja meiri áherslu á eiginleikann sem slíkan, en líka að reyna að draga úr hraðtamningu og spennureið. Var með öðrum orðum viðleitni í þá átt að bæta tamningu og þjálfun. Við vitum að það tekur lengri tíma að þjálfa hross til afkasta ef varðveita á allar gangtegundir og líkamlegt og andlegt jafnvægi hrossins. Það á bæði við um klárhross og alhliðahross. En auðvitað væri sjónarsviftir að klárhestinum og full ástæða til að taka þá umræðu upp á nýja árinu; hvort ástæða sé til að auka hans veg,“ segir Kristinn Guðnason.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári