Dorrit og Dagur leiða hópreiðina
Á sjötta þúsund manns eru nú komnir í Víðidal en landsmóts hestamanna stendur nú sem hæst.
Veðurspáin lítur vel út fyrir daginn í dag og næstu daga, búist er við 16 stiga hita og heiðskýru í kvöld þegar formleg setningarathöfn landsmóts hestamanna fer framr, en hún hefst kl. 20:30. Sýnt verður beint frá viðburðinum á visir.is.
Setningarathöfn landsmóts er jafnan hátíðleg stund, ekki síst hópreiðin sem hundruð hestar og knapar frá hestamannafélögunum á öllu landinu taka þátt í. Fyrir reiðinni mun, að öllu óbreyttu, forsetafrúin Dorrit Moussaieff leiða reiðina ásamt formanni borgarráðs Dagur B. Eggertsson.
Að athöfn lokinni verða skemmtiatriði en þar koma meðal annars fram Helgi Björns og Reiðmenn vindanna, KK, Ingó veðurguð og fleiri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH