Veisluborðin svignuðu

  • 31. mars 2013
  • Fréttir
Veisluborðin svignuðu

Stóðhestaveisla suðurlands var haldin með miklum glæsibrag í Ölfushöllinni í kvöld og rakti hvert glæsiatriðið annað. Fjöldi þekktra gæðinga í bland við stjörnur framtíðarinnar glöddu augu áhorfanda og erfitt er að draga eitthvað eitt atriði út og gera því hærra undir höfði.

Í upphafi sýningarinnar var Ellerts Þórs Benediktssonar dýralæknis minnst, en hann lést að slysförum 25.mars sl. í blóma lífsins. Ellert var dýralæknir á suðurlandi og var hans minnst með einnar mínútu þögn.

Sýningin var saman sett af atriðum með klárhestum, alhliðahestum, afkvæmasýningum og einstaklingssýningum. Hléin voru tvö, af klárhestum í fyrsta hluta vöktu þeir Brjánn frá Blesastöðum, Leonard frá Vakursstöðum og Váli frá Efra-Langholti mesta athygli undirritaðs. Brjánn er Krákssonur undan Blúndu frá Kílhrauni sýndur af glæsibrag af Flosa Ólafssyni sem átti frábært kvöld. Þetta er enn eitt stjörnuefnið sem Blúnda gefur af sér, en Leonard er Aronssonur undan Lyftingu frá Ysta-Mó mikill fótaburðar og mýktarhestur sýndur af Ólafi Ásgeirssyni og Váli er undan Stála og Venus frá Reykjavík Andvaradóttur sem er systir Garra frá Reykjavík, en Váli er mikill fas og fótaburðartöltari með mikilla útgeislun líkt og mörg afkvæmi Stála.

 Af alhliðahestum í fyrsta hluta þá komu Magni frá Þjóðólfshaga, Álmur frá Skjálg, Árli frá Laugarsteini auk Penna og Snævars Þórs frá Eystra-Fróðholti. Magni er mikill fótaburðarhestur undan Tind frá Varmalæk, Álmur skilar alltaf sínu en er nú að rísa aftur upp eftir að hafa meiðst í girðingu, Penni og Snævar Þór eru flugvakrir gammahestar, en undirritaður hafði ekki áður séð Árla og vakti hann lukku sem flugvakur mýktarhestur og enn eitt blómið í hnappagatið hjá Stála frá Kjarri. Eitt afkvæmaatriði var í fyrsta hluta en það var Loki frá Selfossi. Eftir að atriði Loka hafði farið fyrir ofan garð og neðan fyrir norðan heppnaðist atriði hans þetta kvöld með miklum sóma. Honum fylgdu tvær dætur hans frá Langsstöðum í Flóa þær List og Lukka, en þetta eru báðar mjög gripslegar klárhryssur List sýnd með 8,13 í aðaleinkunn en hin ósýnd. Loki sjálfur vekur alltaf athygli og var sýndur af eiganda sínum Ármanni Sverrissyni.

Þá var komið að fyrra hléi þar sem boðið var upp á dýrindis kjötsúpu og annað góðgæti af glaðlyndu og geðgóðu afgreiðslufólki Ölfushallarinnar. En eftir að flestir voru orðnir saddir af veigum þá hélt augnakonfektið áfram að koma. Bræðurnir Tenór og Bragur frá Túnsbergi riðu á vaðið eftir að best tveggja vetra hestur ungfolasýningarinnar hafði kynnt sig. Þeir kynntu sig prýðilega en margir söknuðu þess að þessi flugvakri gæðingur sem Tenór er hafi ekki skyrpt ú hófunum á flugaskeiði í gegnum höllina. Eftir þeim bræðrum komu tveir prýðis alhliðahestar þeir Hrókur frá Efsta-Dal og Kórall frá Eystra-Fróðholti. Hrókur er gullfallegur rýmisalhliðahestur undan Hróðri en Kórall er Aronssonur sammæðra Arion og þeim systrum Spá og Glímu. Kórall kynnti sig vel en á talsvert í land að vera jafn heillandi og Arion stóri bróðir.

Þá komu tveir klárhestar og með fullri virðingu fyrir gæðahestinum Presti frá Hæl og hinum geðþekka stemmningsknapa Kára Steinssyni þá vöktu þau Bikar frá Syðri- Reykjum og Helga Una mesta athygli. Bikar setti sig í kvöld í hóp álitlegustu klárhesta landsins frábærlega sýndur. Þetta er mikið sjarmatröll með mikið fas og fótarburð og eitt vígalegasta brokk sem sést hefur í reiðhallarsýningu sem ætlaði allt að trylla.

Enn  var bætt í gæðingurinn Gaumur frá Auðsholtshjáleigu var næstur og hefur sennilega aldrei komið flottari fram undir styrkri stjórn Þórdísar Erlu og við bættust svo tvær dætur hans eftir stutt „einkashow“ auðvita er ósanngjarnt að ætlast til þess að þær séu betri en pabbi sinn en þær Hallbera frá Hólum og Ríma frá Auðsholtshjáleigu voru samt verðugir fulltrúar föður síns. Þar næst komu þrír úrvalstöltarar þeir Möller frá Blesastöðum, Dáti frá Hrappsstöðum og Dagfari frá Miðkoti. Þetta voru flottir hestar en Möller bar af hópnum og hefur ekki komið svona flottur fyrir í reiðhallarsýningu fyrr. Svo virtist sem Flosi Ólafsson hefði aldrei annað gert en að koma fram í reiðhallarsýningum því hann sýndi Möller af slíku öryggi að eftir var tekið. Þetta atriði ráku svo tvö einstaklingsatriði með gæðingnum Ómi frá Kvistum sem skilaði sýnu með mikilli prýði setinn af þjálfara sínum og ræktanda Kristjóni L. Kristjánssyni. Það hefði gefið þessu atriði enn meira ef eitthvað af ungum og bráðefnilegur afkvæmum hans sem nú eru í tamningu hefðu látið í sig sjá.

Eftir Ómi kom svo fótarburðarhesturinn Framherji frá Flagbjarnarholti sem nú hefur verið seldur til Noregs. Knapi hans var Nils-Christian Larsen. Hágengari hest er vart hægt að hugsa sér en hann veldur þessum miklu hreyfingum ekki ennþá og var aðeins óstilltur í höfuðburði.

Lokaatriðið fyrir hlé var með tveimur hestum sem vöktu verðskuldaða athygli í 4 vetra flokki stóðhesta á LM2012. Þetta voru þeir Hrói frá Flekkudal og sigurvegari fyrrnefnds 4 vetra flokks Nói frá Stóra-Hofi. Hrói var ekki eins flottur á tölti eins og í fyrra en hefur bætt skeiðið mikið. Nói sýndi sig vel fasmikill og flugrúmur. Knapi á honum líkt og áður var Daníel Jónsson en setja má spurningarmerki við hversu langt fíflagangur á hestbaki skal ganga áður en hann hættir að vera fyndinn. Enginn efast um getu Daníels til að hrífa fólk með sér og mynda stemmningu og allt á sín takmörk.

Eftir seinna hlé byrjaði sýningin líkt og eftir fyrra hlé á kynningu ungfola og nú kom efsti 3 vetra folinn fyrir augu áhorfenda, en á eftir honum komu tveir prýðis alhliðahestar þeir Dynur frá Dísarstöðum og Kórall frá Lækjarbotnum og þar næst Heiðurshestur kvöldsins Galsi frá Sauðárkróki. Galsa fylgdu afkomendur hans og voru honum til mikils sóma. Þetta voru gammahryssurnar Flétta frá Árbakka og Hróarskelda frá  Hafsteinsstöðum báðar undan Galsadætrum, Spói frá Kjarri Stálasonur og Akksdóttirin flugvakra Askja frá Mykjunesi. Þá var komið að þeim Króki frá Ytra-Dalsgerði og Konsert frá Korpu.

Eins og lesendur Eiðfaxavefsins hafa orðið varir við hefur Konsert ekki verið hrósað hér fyrir frammistöðu sína í Meistaradeildinni en nú var aldeilis annar bragur á þeim John og Konsert. Það má með sanni segja að Konsert hafi verið einn af hestum sýningarinnar og sýndi flestar sýnar bestu hliðar. Sannarlega upprisa á Páskum. Krókur stendur alltaf fyrir sínu með góðar gangtegundir og glæsileikinn skín af honum. Eftir þá Krók og Konsert voru tvö önnur alhliðahestaatriði með þeim Jarli frá Árbæjarhjáleigu, Sjóði frá Kirkjubæ, Blæ frá Miðsitju og Grunni frá Grund. Sjóður er klárlega bestur þessara hesta og flaug enda á milli af miklu öryggi þó svo að hann sé að vísu mishittinn á vekurðina. Það vakti undrun undirritaðs að sjá Blæ þarna efir að hafa farið mikinn fyrir norðan þremur dögum áður. Hann er trúlega að verða einn mest sýndi hestur landsins, hefur tekið þátt í mýmörgum mótum auk þess að hafa verið sýndur í kynbótadómi alls níu sinnum. Hann kynnti sig vel á tölti og brokki en neitaði að skeiða í báðum tilraunum.

Þá fór að hitna í kolunum enda að síga á seinni hluta sýningarinnar. Þá var komi að einstaklingsatriði Andra frá vatnsleysu og Sigurðar Matthíassonar. Andri er Kolfinnssonur undan Alísu frá Vatnsleysu. Sannarlega glæsihestur sem vakti mikla athygli í töltkeppni Meistaradeildarinnar en hann hefur hæst hlotið 8,38 í aðaleinkunn kynbótadóms.

Þá var komið að uppboðsatriðinu en heiðursfjölskyldan að Eystra-Fróðholti gaf folatoll undir Arion til að bjóða upp. Það eru Duchenne samtökin sem fá styrk þetta árið og kom fulltrúi samtakanna og kynnti málefnið, en um er að ræða ólæknandi erfðasjúkdóm sem leggst eingöngu á drengi. Arion var að mati margra hestur kvöldsins, fasmikill, mjúkur, hágengur og flugvakur. Svo fór að kjötiðnaðarmaðurinn geðþekki Rögnvaldur Óli Pálmason bauð best í tollinn og fór tollurinn á 700.000 kr. sem rennur óskipt til Duchenne samtakanna.

Þá var komið að Landsmótssigurvegurunum Glóðafeyki og Fróða. Þeir komust mjög vel frá sínu og standa fyllilega undir því að vera eitt af lokaatriðum á svona magnaðri sýningu. Gaman var að því að skarta hálsborðunum á þeim hestum sem sigrað höfðu sína flokka á LM en þetta gefur sýningu þessara hesta aukinn hátíðleika. Lokaatriði þessarar mögnuðu sýningar skartaði tveimur ofurhestum sem báðir hafa hlotið hæfileikadóm talsvert yfir 9,00. Þetta voru þeir Hrannar frá Flugumýri og Óskasteinn frá Íbishóli. Hrannar virtist aðeins þungur á sér en sýndi að hann býr yfir frábærum gangtegundum. Þó hefði verið gaman að sjá hann hjá Þorvaldi Árna sem sýndi hann með svo miklum glæsibrag í sinn hæsta dóm á Héraðssýningunni á Selfossi í fyrra. Óskasteinn stóð fyllilega við sitt og kunna þeir Magnús Bragi sannarlegar að gleðja áhorfendur. Það skein af þeim báðum og heilluðu fólk sannarlega upp skónum.

Trúlega besta reiðhallarsýning sem haldin hefur verið í Ölfushöllinni og eins og annar þulur kvöldsins Heimir Gunnarsson segir svo oft: hafið heila þökk fyrir Hrossarækt.is !!!

[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link