Grímutölt á föstudagskvöldið í Reiðhöllinni
Á föstudagskvöldið verður Grímutölt í Reiðhöllinni og hefst það kl. 20:30. Keppnisformið er hægt tölt og fegurðartölt. Keppt verður í tveimur aldursflokkum og tveimur styrkleikaflokkum innan hvers aldursflokks (ef næg þátttaka næst). Skráningagjald er kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri – ekkert fyrir yngri þátttakendur. Það er skilyrði að mæta í einhverskonar búningi (grímubúningi) til að geta tekið þátt.
16 ára á árinu og yngri (fædd 1994 eða síðar)
*Keppnisvanir
*Minna keppnisvanir
17 ára og eldri (fædd 1993 eða fyrr)
*Keppnisvanir
*Minna keppnisvanir
Fimm flottustu grímubúningarnir í hvorum aldurflokki fyrri sig verða verðlaunaðir.
Einnig keppa 5 efstu í hverjum styrkleikaflokki til úrslita í tölti þar sem dæmt verður hægt tölt og fegurðartölt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH