Framherji seldur fyrir hátt verð

  • 13. mars 2013
  • Fréttir
Framherji seldur fyrir hátt verð

Framherji frá Flagbjarnarholti er líklega með dýrustu stóðhestum sem seldir hafa verið hér á landi og keyptir af einum aðila. Sterkur orðrómur er um að að verðið sem greitt hafi verið fyrir hann sé á milli 40 til 50 milljónir íslenskar krónur. Til samanburðar þá var verðmiðinn á Álfi frá Selfossi 60 milljónir, þegar falast var eftir honum fyrir nokkrum árum.

Jens Einarsson:

Kaupandinn er Stall Myra í Noregi, sem er eitt flottasta hrossabúið þar í landi og á meðal annarra gæðinga stóðhestinn og heimsmeistarann í tölti Hvin frá Holtsmúla, og stóðhestinn og heimsmeistarann í fimmgangi Tind frá Varmalæk. Einnig hinn steingráa fjórgangshest Rey frá Dalbæ, sem Nils-Christian Larsen hefur gert garðinn frægan á. Nils er yfirtamningamaður á Stall Myra.

Ræktandi og seljandi Framherja, Sveinbjörn Bragason, vildi ekki staðfesta neinar tölur í sambandi við verðið á Framherja og sagði það einkamál sitt og kaupandans. Aðspurður um hvort 40 til 50 milljónir væri rétta talan svaraði hann: „Gæti það ekki alveg verið?“ Á svipuðum nótum eru svör Hinriks Bragasonar, sem hefur þjálfað og sýnt hestinn. „Framherji er mjög álitlegur keppnishestur og að auki traustur og ljúfur í lund, þannig að það geta allir riðið honum. Að auki er hann stór og fallegur stóðhestur með góðan kynbótadóm. Fólk er tilbúið að greiða gott verð fyrir svona hesta ef þeir eru á annað borð til sölu, sem hann var raunar ekki,“ segir Hinrik, en Framherji verður í þjálfun hjá honum þar til hann fer utan í apríl.

Framherji er á sjötta vetur, undan Hágangi frá Narfastöðum og Surtsey frá Feti, Orradóttur frá Þúfu. Framherji var sýndur í kynbótadómi í fyrra og hlaut 8,27 í aðaleinkun á LM2012, klárhestur. Sýnandi Hinrik Bragason. Hann hlaut 9,0 fyrir fótagerð, tölt, brokk, vilja og fegurð. Sköpulagseinkunn er þétt, engin einkunn lægri en 8,0 og í meðaltal 8,39 fyrir það. Fyrir kosti 8,19, þar af fet 8,0, hægt tölt 8,5 og hægt stökk 8,5.

Það bendir því flest til að Framherji sé efni í bæði kynbótahest og keppnishest í sporti. Enda er það hugmyndin með kaupunum, en Framherji mun verða keppnishestur Elise Lundhaug, sem er dóttir hjónanna á Stall Myra. Hún hefur keppt undanfarin þrjú ár á Hvini frá Holtsmúla með dágóðum árangri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link