Ölnir á norður- og suðurlandi
Gæðingurinn Ölnir frá Akranesi verður áfram í sæðingum í Sandhólaferju fram til 20. ágúst en eftir það verður hann í girðingu á Króki.
Á nýafstöðnu Landsmóti hækkaði Ölnir sig síðan í vor en hann kom inn á Landsmót með einkunnina 8.67 og hækkaði hana í 8.71 og vann þar með sinn flokk! Hann hlaut hvorki meira né minna en 8.93 fyrir hæfileika 5 vetra gamall, þar af 9.5 fyrir vilja og geðslag, 9 fyrir tölt, brokk, stökk, og fegurð í reið, 8.5 fyrir skeið.
Einnig í samvinnu við sæðingastöðina á Dýrfinnustöðum verður boðið upp á að sæða hryssur við Ölni þar.
Verð 155.000 kr með sæðingu .
Nánari upplýsingar í síma:
6919050 – Reynir 8973228 – Ingólfur á Dýrfinnustöðum 6619112 – Guðmar í Sandhólaferju
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH