Framundan í vikunni
Það er nóg um að vera í hestamennskunni og er þessi vika engin undantekning. Eiðfaxi ætlar að setja hér niður helstu viðburði vikunnar. Ef þú mannst eftir einhverjum fleirum máttu endilega benda okkur á það.
Þriðjudagur 12. apríl
- Opið æfingamót í fjórgangi í Spretti
Miðvikudagur – 13. apríl
- Dymbilvikusýning Spretts
- Fimmgangur í Meistaradeild KS
- Opið páskatölt Sleipnis
Fimmtudagur – Skírdagur – 14. apríl
- Stórsýning Sunnlenskra hestamanna í reiðhöllinni á Hellu
- Skírdagskaffi Sörla
- Kvennatölt Líflands á Sauðárkróki
Föstudagar – Föstudagurinn langi – 15. apríl
- Lokakvöld Uppsveitadeildarinnar á Flúðum keppt í tölti og skeiði
- Föstudags langareið hjá hestamannafélaginu Borgfirðingi
Laugardagur 16. apríl
- Opið Páskatölt á Flúðum
- Vetrarmótaröð Skagfirðings keppt er í tölti og A flokk.
- Líflandsmót æskunnar og Léttis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH