Mikið um að vera í Fákasporti í dag
Það verður mikið um að vera í verslun Fákasports á Akureyri í dag….
Kl. 13 er járningasýning í boði Ásbjörns Ólafssonar og Kerckhaert og mun Erlendur Ari Óskarsson járningamaður járna hross í búðinni Kl. 14 verður svo boðið upp merfolald undan fyrstuverðlauna stóðhesti, glæsilegt folald og eftir miklu að slæjast þar. Fákasport og Bústólpi munu bjóða spónabagga á tilboði í tilefni dagsins eða 1.870 kr. baggann m. vsk. Royal Canin fóður fyrir hunda og ketti verður á 20% aflætti og fleiri tilboð í gangi. Þá verða fríar veitingar í búðinni í dag á meðan opið en opið er frá 11-16. Nú er lag að drífa sig niður í Fákasport og taka þátt í gleðinni.
Kv. Arnar, Fákasporti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson