Minnisvarði um Gunnar Bjarnason
Í vetur var haldin Gunnarsvaka, sagna- og skemmtikvöld til heiðurs Gunnari Bjarnasyni en hann var kennari á Hvanneyri og Hrossaræktarráðunautur um árabil. Gunnarsvakan tókst afar vel og söfnuðust þar fjármunir til að reisa glæsilegan minnisvarða á Hvanneyri. Nú er komið að því að afhjúpa listaverkið. Það verður gert föstudaginn 22. júní n.k. kl. 16:00 á Hvanneyri. Allir vinir og velunnarar velkomnir. Stutt dagskrá og veitingar í boði.
Velkomin að Hvanneyri
Hollvinir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH