Stórættuð og vígaleg

  • 2. júní 2012
  • Fréttir
Stórættuð og vígaleg

Tamningamaðurinn Ævar Örn Guðjónsson hefur verið ötull sýnandi kynbótahrossa og áberandi í skeiðkeppnum undanfarin ár. Á félagssvæði Andvara að Kjóavöllum hefur hann komið sér upp prýðis aðstöðu ásamt feðgunum Sigurði Halldórssyni og Halldóri Hróari Sigurðssyni. Þar úir og grúir af stórættuðum efnishrossum og Ævar tekur til við upptalningu: „Hér eru tvö bráðefnileg frá Hárlaugsstöðum. Melkorka, sex vetra Rökkvadóttir, er athyglisverð tölthryssa sem er á leið í dóm. Ópal, bróðir Rökkva sammæðra undan Aroni frá Strandarhöfði, er góður jafnvígur alhliða hestur. Þá er ég með tvær hryssur frá Breiðholti, Gbr. sem eru báðar systur Landsmótssigurvegarans Daggar. Önnur þeirra er undan Keili frá Miðsitju, hin er alsystir hennar, Orradóttir sem sagt. Báðar eru þetta lofandi alhliða hryssur. Þá er ég með rauðblesóttan glófextan stóðhest sem heitir Herkúles frá Þóreyjarnúpi, undan Hágangi frá Narfastöðum, mjög efnilegur fjórgangshestur, ljúfur og meðfærilegur. Tvær upprennandi hryssur frá Strandarhjáleigu lofa einnig góðu. Önnur er klárhryssan Þyrla undan Dyn frá Hvammi og Þröm frá Gunnarsholti, systir Þrennu sem var Íslandsmeistari í fjórgangi 2010. Hin er Roðadóttir, alhliða geng efnishryssa.“

Ævar lumar einnig á nokkrum hrossum frá Vatnsleysu og ekki að ástæðulausu. „Mér finnst gaman þegar hestar lyfta og hreyfa sig mikið. Það eiga Vatnsleysuhrossin sammerkt. Þau hafa oft mikið skap og taka svolítinn tíma í tamningu en mér finnst mikið varið í vígaleg hross. Hér eru tvær slíkar hryssur, sammæðra, undan Ösp frá Vatnsleysu. Þær heita Eik Hróðsdóttir og Fura Roðadóttir og stefni ég með þær báðar í dóm. Hér er önnur Glampadóttir, undan fyrstu verðlauna hryssunni Kveðju frá Skörðugili. Kveikja heitir hún og er mjög góð. Síðasta en ekki sísta nefni ég Libu frá Vatnsleysu, undan Lydíu og Andra frá Vatnsleysu, sem kemur örugglega til með að fara í töltkeppni og B-flokk.“
 
Ævar á í stökustu erfiðleikum með að velja sér eftirlætishross en kemur þó niður á móálóttri fyrstu verðlauna hryssu á sjötta vetur. „Ég kem oftast í mjög góðu skapi af Oktavíu frá Feti. Hún er ofsalega viljug og næm og mjúk með skemmtilegt geðslag, hún vill alltaf vinna með knapanum. Hún er svo ofboðslega vel tamin og það er ekki mér að þakka. Henna Johanna Siren tamdi hana svo listilega vel. Það er eins og að vera með smjör í höndunum að sitja á þessari meri.“
 
Talið berst að keppnishrossum og eiga góð skeiðhross hug Ævars allan. „Hér eru þrjú skeiðhross í hörkuformi. Gjafar frá Þingeyrum, Landsmótssigurvegari í 250 metra skeiði, Blossi frá Skammbeinsstöðum, sigurvegari í 150 metra skeiði í Meistaradeildinni, og Vaka frá Sjávarborg sem ég sýndi í kynbótadómi í fyrra og fékk þá níu fyrir skeið. Henni hef ég hugsað mér að tefla fram í hundrað metra skeiðkeppnum.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link