Ljósmyndakeppni Eiðfaxa í fullum gangi

  • 12. október 2012
  • Fréttir
Ljósmyndakeppni Eiðfaxa í fullum gangi

Ljósmyndakeppni Eiðfaxa er nú í fullum gangi en löng hefð er fyrir því að Eiðfaxi standi fyrir slíkri keppni. Viljum við hvetja alla til að taka þátt en vegleg verðlaun verða í boði fyrir bestu myndina auk glæsilegra aukavinninga. 

Síðasti skiladagur mynda er föstudagurinn 23. nóvember. Myndirnar skulu vera amk. 2 mb að stærð og sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected]. Mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir. 

Myndirnar eru eign höfunda en Eiðfaxi áskilur sér rétt til að birta þær í jólablaði 2012 og tölublöðum næsta árs.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link