Ljósmyndasamkeppni Hestablaðsins
Hestablaðið kynnir ljósmyndasamkeppni 2012. Keppnin er bæði fyrir áhugafólk og atvinnuljósmyndara. Tilgreina skal við innsendar myndir hvort þær eru teknar af áhuga- eða atvinnuljósmyndari. Veitt verða þrenn verðlaun í hvorum flokki fyrir bestu myndirnar. Aðeins eru teknar inn myndir í stafrænu formi og skal senda þær á netfang: [email protected] fyrir 15. nóvember. ATH! Myndirnar verða að vera í fullri upplausn. Tíu bestu myndirnar verða birtar í Hestablaðinu og áskilur blaðið sér rétt til að birta þær án endurgjalds.
Myndina með fréttinni tók Steinþór Runólfsson af Fanneyju Hrund Hilmarsdóttur og merfolaldinu Hetju frá Hellu sem fæddist í sumar og er í eigu Steinþórs og Fanneyjar Hrundar. Þau eru einnig ræktendur. Móðir Hetju er Hrefna frá Hellu en pabbinn er Þróttur frá Hamarshjáleigu. Myndin er að sjálfssögðu í ljósmyndasamkeppni Hestablaðsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH