Mónika frá Miðfelli í Danaveldi
Mónika frá Miðfelli 5 hefur verið seld til Danmerkur. Hún vakti mikla athygli á Landsmótinu í sumar og fékk meðal annars 9,5 fyrir tölt sem er mjög óvenjulegt hjá 4. vetra trippi. Hún hlaut 8,15 í aðaleinkunn, klárhryssa. Mónika er undan Stála frá Kjarri, Galsasyni frá Sauðárkróki og 1. verðlauna hryssunni Aldvöku frá Miðfelli 5 sem er undan Andvara frá Ey. Ræktandi er Magnús Gunnlaugsson í Miðfelli í Hrunamannahreppi. Sýnandi á LM2012 var Sigurður Óli Kristinsson. Nýjir eigendur í Danmörku hafa þegar fengið hryssuna til sín. Myndina tók Jón Björnsson á LM2012.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH