Dúxar sporðreisast á Hólaskóla
Fimm nemendur á öðru ári á hestabraut Hólaskóla féllu í svokölluðum þjálfunarhesta-kúrsi nýverið. Þar á meðal tvær þýskar stúlkur sem dúxuðu á fyrsta ári: Anna-Lena Aldenhof, sem hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn í kennslufræði á leiðbeiningastigi, auk þess sem hún hlaut Eiðfaxabikarinn fyrir besta umhirðu á hrossi. Og Sina Scholz, sem hlaut reiðmennskuverðlaun FT og Morgunblaðsskeifuna fyrir bestan samanlagðan árangur í reiðmennsku. Kennarar í kúrsinum voru Sölvi Sigurðsson og Eyjólfur Þorsteinsson. Þeir voru prófdómarar ásamt Artemisu Bertus, reiðkennara og þjálfara frá Hólaskóla.
Báðar hafa stúlkurnar unnið við tamningar hér á landi í nokkur misseri við góðan orðstír og þess má geta að reiðkennarar við skólann, Þórarinn Eymundsson og Ísólfur Líndal Þórisson, höfðu ráðið þær til sín í verknám eftir áramót, en verknámið er hluti af náminu við skólann. Fall þeirra kom því mjög flatt upp á alla: þær sjálfar, kennara við skólann og fyrrverandi vinnuveitendur. Báðar leystu frumtamningaverkefni í haust vel af hendi.
Kennarar og prófdómarar eru bundnir trúnaði varðandi allt er snýr að einstökum nemendum og árangri þeirra. Ýmsar spurningar hafa hins vegar vaknað í kjölfar prófsins. Til dæmis hvort kennslan hafi farið úrskeiðis. Samkvæmt upplýsingum H&H voru báðar stúlkurnar sem nefndar eru ósáttar við þær aðferðir sem kennararnir uppálögðu þeim og telja að þær hafi ekki verið í samræmi við þau námsgögn sem þær fengu. Kennararnir gáfu þeim þá skýringu eftir prófið að þær hefðu misskilið leiðbeiningarnar.
Sina segir að ekki sé útilokað að þær hafi misskilið kennarana. En það væri þá í fyrsta sinn í náminu. Þær hafi haft góðan skilning allt fyrsta árið og í frumtamninga-kúrsinum í haust. Kennararnir hafi heldur ekki gert athugasemdir meðan á námskeiðinu stóð um að eitthvað væri að fara úrskeiðis hjá þeim. Þjálfunarhesta-kúrsinn er undanfari í náminu og samkvæmt reglum mega nemendur ekki fara í næsta áfanga ef þeir falla í undanfara. Anna-Lena og Sina þurfa því að pakka saman og yfirgefa skólann, en mega koma í áfangann aftur næsta haust.
Víkingur Gunnarsson, forstöðumaður hestabrautarinnar, segir að niðurstaðan sé endanleg. Nemendur hafi hins vegar rétt til að senda skólanum erindi ef þeir telji að á sér hafi verið brotið. Ekkert slíkt erindi hafi borist ennþá en það verði að sjálfssögðu tekið fyrir og metið þegar og ef það berst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári