Styttist í endurmenntunarnámskeið
Nú er farið að styttast í endurmenntunarnámskeið HÍDÍ 2015. Fyrra námskeiðið verður haldið í Harðarbóli Mosfellsbæ þann 17.janúar n.k. kl.10:00 (ekki kl.09:00 eins og áður hefur komið fram!) og það seinna í Skeifunni í reiðhöll Léttis á Akureyri þann 24.janúar kl.10:00.
Mælt er til þess að dómarar séu mættir eigi seinna en 9:45 til að hafa tíma til að ganga frá greiðslu áður en námskeiðið hefst.
Námskeiðs- og félagsgjald 2015 verður 17.000 kr. og verður það rukkað áður en námskeiðið hefst. Vinsamlegast komið með pening því enginn posi er ekki á staðnum. Dómari sem sækir námskeiðið telst ekki virkur fyrr en hann hefur gengið frá námskeiðs- og félagsgjaldi!!
Þeir dómarar sem ekki hafa nú þegar skráð sig á annaðhvort námskeiðið eru vinsamlegast beðnir um að gera það hið allra fyrst!!! Skráningarformið er hér.
Nákvæmlega sama dagskráin verður á báðum stöðum!
Dagskrá endurmenntunar 2015:
Kl.10:00 Ávarp formanns HÍDÍ
Kl.10:15 Gunnar Reynisson – Reiðmennska og dómkerfið.
Kl.11:15 Gunnar Reynisson – Hreyfingafræði
Þar mun Gunnar fræða okkur um almenna líkamsvirkni hestsins,
mikilvægi réttrar höfuð- og hálsstillingar með tilliti til virkni í baki og
afturhluta.
kl.12:15 Matarhlé – boðið verður uppá hádegisverði sem er innifalið í námsk.gjaldi.
kl.13:00 Gunnar Reynisson – Hreyfigreiningar
Umræða um þá möguleika sem eru til og hvaða kosti þeir gefa okkur
til þjálfunar á hæfni dómara að meta gæði gangtegunda t.d. takt á skeiði
og tölti.
kl.14:00 Breytingar á reglum/leiðara
kl.14:30 Kaffihlé
Kl.14:45 Dæmt eftir myndbandsupptökum
kl.16:30 Almennar umræður.
kl.17:00 Lok.
Minnum ykkur einnig á að hafa með ykkur skriffæri, reglur og leiðara!!!!!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH