Einkennalaus folöld með 41 stigs hita

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hitapestin frá 1998 sennileg ástæða

Sjö folöld á Skeiðvöllum í Landssveit reyndust vera með meira en 40 stiga hita þegar þau voru mæld fyrir skömmu. Tvö voru með meira en 41 stigs hita. Þau sjö folöld, sem eru með mestan hita eru spræk og sýndu engin einkenni hrossapestarinnar. Þrjú yngstu folöldin eru með smávægilegan hor. Dýralæknir telur að ástæða hitans sé gamla hitapestin frá 1998, sem er landlæg og skýtur upp kollinum af og til. Öll folöldin eru komin á hús og eru nú meðhöndluð með penicillíni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link