Olil og Bergur ræktunarmenn ársins
Ketilsstaðir/Selfoss/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble, er hrossarkæktarbú ársins 2010. Valið kom ekki á óvart. Buið sýndi langflest hross þeirra búa sem tilnefnd voru, samtals 19 hross. Meðalaldur þeirra er 5,2 ár, sem er í lægri kanti, og meðaltal aðaleinkunna 8,07. Tíu hross hlutu fyrstu verðlaun og sjö eru með 8,20 og hærra í aðaleinkunn. Sjö hross í hópnum eru undan Álfasteini frá Selfossi.
Með hæsta dóm er Brimnir frá Ketilsstöðum, 8,45 í aðaleinkunn. Hann er 5 vetra, undan Álfasteini frá Selfossi og Vakningu frá Ketilsstöðum, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla. Brimnir er öflugur alhliða hestur með 9,0 fyrir fótagerð, skeið og vilja. Gandálfur frá Selfossi er 6 vetram undan Gusti frá Hóli og Álfadísi frá Selfossi, Adamsdóttur frá Meðalfelli. Hann er með 8,39 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir hófa, brokk og vilja. Góður alhliða reiðhestur.
Ljóni frá Ketilsstöðum er 6 vetra, undan Álfasteini og Ljónslöpp frá Ketilsstöðum, Oddsdóttur frá Selfossi. Hann er með 8,39 í aðaleinkunn. Þar af 9,5 fyrir fótagerð og 9,0 fyrir hófa. En 6,5 fyrir réttleika. Flottur ahliða hestur sem líklega er sá stóðhestur frá búinu sem drífur hvað mest upp í brekkuna.
Heilladís frá Selfossi er með fjórðu hæstu aðaleinkunnina í hópnum, 8,32. Hún er 5 vetra, undan Álfadísi og Suðra frá Holtsmúla. Heilladís er jafngóð ahliða hryssa, brúnskjótt. Hún er með 9,0 fyrir prúðleika, fegurð og hægt tölt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári