Hrossapestin á undanhaldi

  • 29. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Óvíst hver framvindan verður þegar þéttleiki eykst

Hrossapestin hefur verið á undanhaldi í haust og svo virðist sem frostakafli hafi hjálpað til við að drepa niður smitmagn, til dæmis þar sem hryssur með folöldum eru á gjöf margar saman. Dálítið hefur þó borið á einkennum hjá hrossum sem verið hafa húsi í haust. Dæmi eru um að þurft hafi að setja reiðhross á húsi á penicillín-kúr, en þau eru fá eftir því sem næst verður komist.

Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma, segir að engin tilkynning hafi borist til Matvælastofnunar um ný svæsin tilfelli og enginn dýralæknir hafi látið vita um að hrossapestin hafi tekið sig upp af krafti. Sigríður segir að gangur pestarinnar í haust gefi tilefni til bjartsýni. Svo virðist sem flest hross hafi byggt upp ónæmi, mismikið þó. Þau hross sem fái pestina aftur veikist minna og séu fljótari að ná sér.

Ekki sé þó hægt að fullyrða um hver framvindan verði þegar líður á veturinn, þegar fjöldi reiðhrossa verður kominn á hús og þéttleiki hrossa verður í hámarki. Rétt er að ítreka að margoft hefur verið bent á að hreinlæti og gott rými á hrossum er besta vörnin til að halda smitmagni niðri, en smitmagnið virðist hafa afgerandi áhrif á það hve hrossin veikjast mikið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link