Mennirnir sem breyttu hestinum

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Sveinn og Indriði heiðraðir

Segja má að Sveinn Guðmundsson á Sauðárkróki og Indriði Ólafsson frá Þúfu í Landeyjum beri mesta ábyrgð á þeim breytingum, sem flestir vilja meina að séu til framfara, sem orðið hafa á íslenska hestinum á undanförnum áratugum. Þeir voru báðir heiðraðir fyrir framlag sitt til hestamennskunnar á Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway um helgina.

Sveinn byrjaði að rækta hross um miðja síðustu öld. Hann hefur tekið þátt í öllum Landsmótum hestamanna frá upphafi, eða frá 1950 að fyrsta Landsmótið var haldið á Skógarhólum. Hann hefur þrisvar tekið við Sleipnisbikarnum fyrir besta heiðursverðlauna stóðhest með afkvæmum á Landsmóti, oftar en nokkur annar. Indriði sótti í smiðju Sveins þegar hann fékk Orra frá Þúfu undan Otri frá Sauðárkróki. Orri er sá hestur sem hefur fleytt hrossaræktinni hraðast fram á við síðan skipulögð ræktun íslenska hestsins hófst snemma á tuttugustu öldinni. Indriði hefur tvisvar veitt Sleipnisbikarnum viðtöku, fyrir Orra á LM2000, og fyrir son hans Þorra frá Þúgu á LM2006.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link