Hef ekki gaman að hestum
Í 12. tölublaði Hesta og hestamanna, sem kemur út á morgun, fimmtudag, er viðtal við Hans Kjerúlft og Nikólínu Ósk Rúnarsdóttur, tamningamenn á Reyðarfirði. Hans hefur í hálfan annan áratug verið í fremstu röð knapa í keppni og sýningum. Hann segir í viðtalinu að hann sé hvorki hestamaður né tamningamaður og hafi ekki einu sinni gaman að hestum. Hvort eitthvað er að marka þessi orð Hansa er ekki gott að segja. Eitt er þó víst að Hans er með öflugustu reiðmönnum og tamningamönnum landsins. Lesið viðtal við Hans og Nikólínu í Hestum og hestamönnum.
Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622, eða með því að smella HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári