Reiðskemma í Ólafsfirði
„Nú er verið að reisa reiðskemmu á félagssvæði Hestamannafélagsins Gnýfara í Ólafsfirði. Eins og fax.is sagði frá í byrjun febrúar sl. þá hófst undirbúningsvinna fyrir reiðskemmunni þá og vonast er til að hægt verði að loka húsinu innan skamms. Reiðskemman er 30 x 16 metrar að stærð og kemur til með að gjörbylta allri starfsemi Hestamannafélagsins til betri vegar. Mikill uppgangur er í hestamennskunni á svæðinu eftir að hestamenn fengu að snúa aftur í hesthúsahverfið sem stóð autt í fjögur ár en á þeim tíma stóðu yfir framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH