Þöll frá Heiði fylfull

  • 2. október 2012
  • Fréttir
Stáli frá Kjarri gefur fyrst og fremst léttbyggð alhliðahross með gott skeið. Topp klárhross slæðast þó með.

Stáli frá Kjarri kom sterkur inn á árinu. Hann gefur fyrst og fremst léttbyggð alhliðahross með gott skeið. Topp klárhross slæðast þó með og má þar nefna Móniku frá Miðfelli í Hrunamannahreppi og Þöll frá Heiði. Þöll var sýnd í kynbótadómi á LM2011 og fékk meðal annars 9,5 fyrir hægt tölt, vilja og geðslag og 9 fyrir tölt. Þöll gekkst undir fósturvísaflutninga í fyrra og undan henni og Feyki frá Háholti fæddist merfolald í vor, sem gengur undir fósturmóður sinni. Þöll var hins vegar í fullri þjálfun í sumar og tók þátt í töltkeppni, meðal annars á Landsmótinu í Reykjavík. Besta einkunn hennar í úrslitum var 7,72. Hún er nú fylfull við Blysfara frá Fremra-Hálsi. Myndina tók Jón Björnsson á LM2012, knapi Sigurður Óli Kristinsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link