Opið hestaíþróttamót á Hólum 8.-9. maí
Héraðsmót UMSS í hestaíþróttum verður haldið á Hólum föstudaginn og laugardaginn 8.-9. maí. Mótið byrjar kl 10.00 og knapafundur er kl. 09.00. Keppt verður í eftirfarandi keppnisgreinum ef næg þátttaka fæst:
- Fjórgangur (V1)
- Ungmenni og fullorðnir
- Tölt (T1)
- Ungmenni og fullorðnir
- Slakatauma tölt (T2) (einn flokkur)
- Fimmgangur (F1) (einn flokkur)
- Gæðingaskeið (PP2) (einn flokkur)
- 100 metra skeið
- Léttur fjórgangur (V5)
- Börn
- Unglingar
- Létt tölt (T7)
- Börn
- Unglingar
Skeiðkappreiðar 150m. og 250m. verða haldnar á miðvikudag 5. mai á vellinum á Sauðárkróki og mun skeiðfélagið Kjarval stjórna því.
Allar þessar keppnisgreinar eru samkvæmt FIPO. Við skráningu þarf að gefa upp nafn og kennitölu knapa, nafn og fæðingarnúmer hests og keppnisgrein.
Keppt verður einnig í fjórgangur V5 og tölt T7 fyrir börn og unglinga. Þau verða 2-3 inná í einu og riða eftir þul og þurfa að gefa upp á hvaða hönd á að riða. Þau mega samt keppa upp fyrir sig í öllum greinum.
Stutt lýsing á keppnisgreinunum:
V5:
Frjáls ferð á tölti
Hægt til milliferðar brokk
Milliferðar fet
Hægt til milliferðar stökk
T7:
Hægt tölt – hægja skal niður á fet og skipta um hönd
Frjáls ferð á tölti
Í báðum keppnisgreinunum (V5 og T7) verða tveir keppendur inni á vellinum í einu og riðið eftir þul. Því þarf að taka fram upp á hvora hönd skal ríða. Í fyrsta flokki er einn keppandi inná vellinum í einu.
Senda skal skráningar á eftirfarandi netföng: [email protected] eða [email protected]. Athugið að skráningu lýkur mánudag 3. mai kl. 23.00. Skráningargjald er 3.000 kr fyrir fyrstu skráningu en 1.500 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Endurgreiðsla fæst einungis gegn framvísun dýralæknisvottorðs. Gíróseðill fyrir þátttökugjaldið verður sent á knapa.
Hestaíþróttaráð Skagafjarðar UMSS
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH