Folalda- og ungfolasýning Náttfara
Folalda- og ungfolasýning hrossaræktarfélagsins Náttfara í Eyjafjarðarsveit og nágrenni fer fram laugardaginn 9. janúar kl.13.00 í Melaskjóli á Melgerðismelum. Keppt verður í tveimur flokkum, hryssur og hestar, og einnig er hægt að fá mat á ungfola fædda 2007 og 2008.
Sú nýbreytni verður tekin upp að sýnendur mæta með folöldin á Melgerðismela kl. 10 þar sem þau verða byggingadæmd. Eigendur eru ekki skyldugir til að vera á staðnum allan tímann en verða að mæta þegar keppnin hefst kl. 13.00
Dómari verður Eyþór Einarsson
Skráning er hjá Auðbirni í Hólakoti í síma 864-8000 og á tölvupóstfang [email protected]. Það sem fram þarf að koma: Nafn, uppruni, kyn, litur, faðir, móðir og eigandi. Síðasti skráningardagur er þriðjudagur 5. janúar.
Sýningarstjórn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson