Sýnikennsla og fyrirlestur FT – Sigurbjörn Bárðarson-

  • 30. desember 2010
  • Fréttir
Sýnikennsla og fyrirlestur FT - Sigurbjörn Bárðarson-

Félag tamningamanna stóð fyrir sýningu í reiðhöll hestamannafélagsins Gusts fimmtudagskvöldið 30.12…

Að þessu sinni var það tamningameistarinn Sigurbjörn Bárðarson sem hélt fyrirlestur og sýnikennslu.
Þema kvöldsins var ýmiskonar beislisbúnaður og vinnan með hestinn. Sigurbjörn var með mikið safn af allskyns beislabúnaði og mélum meðferðis og hélt nokkuð langan fyrirlestur um tilgang og notkun þessarar fjölbreyttu flóru og hvernig hægt er að hafa áhrif á og laga hin ýmsu vandamál með breytilegum búnaði.  Endaði Sigurbjörn fyrirlesturinn á ábendingu um það að búnaðurinn skipti í raun ekki miklu máli, það væri höndin sem héldi um tauminn sem væri mest áríðandi.
Sýnikennsla Sigurbjörns snerist um undirbúning og þjálfun fyrir keppni og reið hann hryssunni Líf frá Möðrufelli.
Hóf hann sýninguna á leysandi æfingum og því hvernig hann mýkti upp báðar hliðar hestsins. Hann lagði áherslu á ábendingar og góða svörun við þeim. Síðan fór hann að ríða meiri söfnun og tölt á breytilegum hraða.
Sigurbjörn varar við að hesturinn sé þvingaður í mjög lágan höfuðburð. Hann segist vilja opna höfuðburðinn og leyfa hestinum að opna aðeins kverkina og ganga þannig frjálsari þegar honum er spyrnt fram á meiri hraða. Jafnframt lagði Sigurbjörn á það áherslu að sérkenni íslenskrar reiðmennsku verði að fá að njóta sín, „að reiðmennskunni sé ekki drekkt í stórhestafræðum“ eins og hann orðaði það. Benti Sigurbjörn á það meðal annars, að æfingin „lokaður sniðgangur“ væri að sínu mati mjög varasöm æfing og væri hann búinn að taka hana út úr sínu þjálfunarprógrammi.  „Hesturinn fer að nota þessa æfingu sem flóttaleið þegar hann er beðinn um eitthvað sem honum finnst erfitt eins til dæmis hægt tölt“ sagði Sigurbjörn.
Húsfyllir var og góð stemning enda kennarinn skemmtilegur og húmoristi mikill. FT á heiður skilinn fyrir framtakið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link