„Léttleiki og frelsi“ Hvernig verður þú leiðtogi?

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
"Léttleiki og frelsi" Hvernig verður þú leiðtogi?

Einn af kennurunum á fræðsludeginum „Léttleiki og frelsi“ sem haldinn verður í Mosfellsbænum um næstu helgi er Þórhildur Þórhallsdóttir félagsfræðingur…

og framhaldsskólakennari. Þórhildur segir frá því hvernig hún notar hestinn á leiðtoganámskeiðum fyrir stjórnendur fyrirtækja. Hún gerir það bæði í formi fyrirlestra og lætur nemendur sína upplifa viðbrögð hestsins við áreiti. Hugmyndin er að nemendur hennar verði betri stjórnendur og flinkari í mannlegum samskiptum. Hún heldur einnig það sem hún kallar „Sjálfstyrkingar námskeið“ sem eru hugsuð til þess að byggja upp sjálfstraust fólks og hæfni til þess að takast á við erfið verkefni. Þórhildur mun halda sutt erindi um starf sitt og fylgja því eftir með stuttri sýnikennslu þar sem hún sýnir hvernig hún vinnur með nemendur sína. Hennar samstarfsaðili sem mun vinna með henni sýnikennsluna er Berglind Árnadóttir framhaldsskólakennari og íþróttakennari. Nánari upplýsingar um þær Þórhildi og Berglindi er að finna á vefnum http://hestamennt.is/

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link