Ræktunarmenn og kynbótahross Sörla

  • 15. október 2010
  • Fréttir
Ræktunarmenn og kynbótahross Sörla

Á aðalfundi hestamannafélagsins Sörla í gærkvöldi var ræktandi hæst dæmda hross ársins heiðraður….

Það var Sörlafélaginn Jón Benjamínsson, sem ræktaði stóðhestinn Blysfara frá Fremra-Hálsi, sem hlotnaðist heiðurinn í ár. Blysfari er 5 vetra Arðssonur sem hlaut 8,31 í aðaleinkunn í dómi í sumar.

Einnig var hæst dæmda kynbótahross ársins hjá Sörla heiðrað. Það var stóðhesturinn Már frá Feti sem fékk 8,34 í kynbótasýningu í sumar. Eigandi Más þegar hann var sýndur var hrossaræktarbúið Fet. Már er undan Orra frá Þúfu og Ösp frá Háholti. Eigandi Fets, Karl Wernersson, veitti verðlaununum viðtöku.

Kynbótanefnd Sörla
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link