Milli tanna álhausa og kálhausa
Um eitt þúsund manns, útitivistarfólk úr hinum ýmsu klúbbum og félögum, mótmæltu skerðingu á ferðafrelsi með táknrænum hætti inni á hálendi Íslands um helgina.
Mótmælin fóru fram á Kistuöldu, sem er nærri miðpunkti landsins. Þar var reistur rauður kross með áletruninni FERÐAFRELSI 874-2010.
Í þessum fjölmenna hópi voru jeppamenn, hestamenn, skotveiðimenn, hjólreiðamenn, fjórhjólamenn, reiðhjólamenn og göngumenn. Hátt í 300 farartæki, jeppar, fjórhjól og mótorhjól, voru á Kistuöldu þegar krossinn var reistur.
Útvarpsstöð var í einum jeppanna, Útvarp Vonarskarð, og sent út alla ferðina fram og til baka.
Einar Kristján Haraldsson frá Skotveiðifélaginu var útvarpsþulur. Í máli hans kom meðal annars fram að ótti náttúruverndarsinna við fólk sem ferðast um landið á annan hátt en á tveimur jafnfljótum sé byggður á misskilningi. Rök þeirra, meðal annars rök í tillögum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um lokun leiða og skerðingu ferðafrelsis um þjóðgarðinn, séu oftar en ekki haldlaus.
„Við höfum lent á milli tanna á kálhausum og álhausum,“ sagði Einar Kristján og vísaði þar í ummæli sem féllu í Kastljósi RÚV fyrir skömmu. Vildi hann meina að öfgaöfl, annars vegar í hópi stóriðjusinna og hins vegar í hópi náttúruverndarsinna, afvegaleiddu skynsamlega umræðu um útivist og náttúrvernd.
„Við erum hið raunverulega útivistarfólk og náttúruunnendur. Það erum við sem eyðum öllum okkar frístundum úti í náttúrunni og inni á hálendinu. Við þekkjum landið og náttúru þess mun betur en margir þeir sem eru að leggja fram tillögur um hvar má stíga niður fæti, hvar má aka og hvar má skjóta,“ segir Einar Kristján, sem hefur ferðast um landið gangandi og akandi í 30 ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári