Atkvæðagreiðsla hafin

  • 5. nóvember 2022
  • Fréttir
63. landsþing Landssambands hestamannafélaga

Þingfundur er hafinn. Nefndir eru að skila áliti og eru atkvæðagreiðslur hafnar.

Ferða og samgöngunefnd, æskulýðs- og allsherjarnefnd hafa lokið umræðu um sýnar tillögur og er búið að kjósa um þær. Hægt er að sjá tillögurnar inn á síðu LH.

Mikið var talað um æskulýðsmál og nýliðun. Æskulýðsnefndin lagði fram tvær breytingartillögur á tillögu 38. Fyrri að setja ætti skýr tímamörk. Starfshópur yrði myndaður fyrir 1. febrúar 2023 og skili af sér aðgerðaráætlun sem verður kynnt á haustfundi. Hin tillagan var að stjórn LH óski að aðild innan nýliðunarmála hjá barna- og menntamálaráðuneytinu fyrir 30. nóvember.

Trausti Hjálmarsson úr hestamannafélaginu Jökli benti á að hann vildi sjá karla vera öflugri í æskulýðsmálum. „Við eigum að láta okkur þetta varða en þetta er ekki bara kvennastarf. Við eigum börnin líka.“

Atli Már Ingólfsson, formaður Sörla, talaði um að þetta væri vinna innan félaganna og að hestamenn hefðu algjörlega sofnað á verðinum. Hann skaut líka á núverandi formann LH að hann hefði ekki staðið sig í að efna kosninga loforð sín frá síðasta þingi tengd nýliðun og vakti athygli á því að enginn í stjórninni bauð sig fram í æskulýðsnefndina sem tekur á þeim málum, áhuginn hjá stjórninni sé það mikill fyrir þessum málefnum. Vakti hann líka athygli á því að sveitarfélög styrkja ekki fullorðið fólk að keppa á hestum heldur styrkja barna og unglingastarf.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link