Dropi frá Kirkjubæ bestur alhliða gæðinga
Síðustu tvö úrslit dagsins voru í A-flokki ungmenna og A-flokki gæðinga.
Fjórðungsmóti á Fornustekkum hefur verið hestamannafélaginu Hornfirðingi til mikils sóma. Veðrið allan tíman verið milt og gott og fjallasýnin hér á Fornustekkum er engu lík. Það er ljóst að mót af þessum toga eru ekki liðin undir lok. Hestakosturinn góður í öllum flokkum og stemningin meðal áhorfenda góð.
Síðustu úrslitin voru í A-flokki gæðinga. Hestamannafélagið Geysir átti þrjá efstu hesta í þessum úrslitum. Dropi frá Kirkjubæ stóð efstur af alhliða hestum með einkunnina 8,88. Knapi á honum var Hanna Rún Ingibergsdóttir. Sýning þeirra var fumlaus og glæsileg. Annar varð Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 með 8,85 í einkunn knapi á honum Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson. Þriðji varð Jarl frá Árbæjarhjáleigu 2 setin af Heklu Katharínu.
Einnig var keppt í A-flokki ungmenna og var það Ingunn Birna Árnadóttir og Tvistur frá Garðshorni sem sigruðu með 8,12 í einkunn.
Hér eru allar niðurstöður a-úrslita í þessum tveimur flokkum.
A úrslit A-flokkur
Sæti Hross Knapi Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Dropi frá Kirkjubæ Hanna Rún Ingibergsdóttir Geysir 8,88
2 Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson Geysir 8,85
3 Jarl frá Árbæjarhjáleigu II Hekla Katharína Kristinsdóttir Geysir 8,61
4 Vængur frá Grund Anna Kristín Friðriksdóttir Hringur 8,53
5 Greipur frá Lönguhlíð Hans Kjerúlf Freyfaxi 8,51
6 Narfi frá Áskoti Sigurður Sigurðarson Geysir 8,50
7 Sproti frá Sauðholti 2 Svavar Örn Hreiðarsson Hringur 8,48
8 Askja frá Efstu-Grund Hlynur Guðmundsson Sindri 7,27
A úrslit A-flokkur ungmenna
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Ingunn Birna Árnadóttir Tvistur frá Garðshorni Léttir 8,12
2 Mathilde Nijzingh Fjóla frá Horni I Hornfirðingur 7,68
3 Mathilde Larsen Gyðja frá Bjarnanesi Hornfirðingur 7,37
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH