Fjórir ganga úr aðalstjórn LH
Kjörnefnd Landssambands hestamannafélaga vinnur að því þessa dagana að stilla upp væntanlegum kandidötum í stjórn og varastjórn samtakanna. Landsþing hestamanna eru haldin annað hvert ár og samkvæmt lögum og reglum samtakanna eru öll sæti laus á hverju þingi. Það er að segja, stjórn og varastjórn er kosin til tveggja ára í senn.
Fyrir liggur að fjórir í aðalstjórn gefa ekki kost á sér áfram. Það eru Sigfús Helgason í Létti á Akureyri, Vilhjálmur Skúlason, varaformaður, í Fáki í Reykjavík, Ísleifur Jónasson í Geysi á Rangárvöllum, og Maríanna Gunnarsdóttir, gjaldkeri, í Fáki í Reykjavík. Búist er við að Haraldur Þórarinsson, formaður, í Sleipni á Selfossi, Sigurður Ævarsson, í Sörla í Hafnarfirði, og Oddur Hafsteinsson, í Andvara í Garðabæ, gefi kost á sér áfram.
Guðmundur Hagalínsson, formaður kjörnefndar, segir að fáir hafi gefið kost á sér til stjórnarsetu og vildi engin nöfn nefna að svo stöddu. Þess má geta að kjörnefnd leggur til fyrir komandi landsþing að framboðsfrestur verði settur, líkt og er í flestum stærri samtökum og félögum. Eins og staðan er nú þá eru allir þingsfulltrúar í framboði og þurfa ekki að tilkynna framboð sitt fyrr en á síðustu mínútu fyrir kosningu.
Nokkur nöfn hafa verið nefnd í umræðunni sem hugsanlegir kandidatar í stjórn. Má þar nefna Guðmund Sveinsson, formann Léttfeta á Sauðárkróki, Andreu Þorvaldsdóttur, formann Léttis á Akureyri, Elínu Heiðu Valsdóttur og Kristínu Lárusdóttur hestakonur í Kópi í Vestur-Skaftafellssýslu, Gunnar Sturluson í Snæfellingi á Snæfellsnesi, Hallgrím Birkisson í Sleipni á Selfossi, og Önnu Sigurðardóttir í Fáki í Reykjavík.
Landsþing LH verður haldið á Akureyri um aðra helgi, dagana 22. og 23. október.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári